Umbra20

Umbra20

Þín leið að nýrri íbúð – aðeins 10% útborgun

Umbra20 sjóðurinn er ný leið í boði fyrir kaupendur fasteigna. Þessi leið auðveldar fólki að komast inn á markaðinn, stækka við sig eða minnka, enda þarf að leggja til mun minna eigið fé. Með þáttöku sjóðsins þurfa kaupendur að eiga lágmarki 10% eigið fé. Þú sem kaupandi hefur 100% ráðstöfunarrétt yfir eigninni.

Umbra20

Hvað er Umbra20?

Umbra20 er sjóður í eigu Umbra ehf. og er rekinn af sjóðastýringarfyrirtækinu Stefni.  Sjóðurinn fjárfestir í íbúðahúsnæði með kaupendum með það fyrir augum að auðvelda þeim íbúðakaup.  Fjárfestingin takmarkast við þær eignir sem Umbra er með í byggingu og verða þær þá í óskiptri sameign með kaupendum.  Fjárfestingarhlutfall sjóðsins er að hámarki 20%.  Kaupandinn tekur svo allt að 70% lán hjá lánastofnun og leggur svo afganginn til af eigin fé, að lágmarki 10%.

  • Samningur er til 10 ára
  • Býrð í eigninni eða leigir hana út
  • Greiðir fasta leigu mánaðarlega af eignarhlut Umbra20
Spurt og svarað

Umbra20 Eignir

Þær eignir sem Umbra20 nær til eru annarsvegar Eirhöfði 7 og hins vegar eignir við Víðiholt á Álftanesi.

Umbra20
1.

Finnur eignina

Þú finnur eign í eignasafni Umbru og setur þig í samband við fasteignasala verkefnisins.  Gerir svo tilboð í eignina.

Umbra20
2.

Vinna við fjármögnun og skjalagerð

Við samþykki tilboðs tekur við vinna við fjármögnun.  Við kauptilboð er sameignarsamningur og leigusamningur undirritaður með fasteignasölum. Samningstíminn er 10 ár og mun Umbra20 eiga allt að 20% eignarhlut í eigninni.

Umbra20
3.

Þegar skilyrði kaupsamnings eru uppfyllt er boðað til kaupsamnings.

Þá ertu orðinn eigandi íbúðarinnar ásamt Umbru20.  Þú hefur þá 100% ráðstöfunarrétt yfir íbúðinni.  Þú getur svo selt íbúðina eða keypt hlut Umbru20 á samningstímanum.